Bílinn minn 1975 árgerð Mercedes Benz 280SE
Nú er búið að birta myndir af því hvernig innréttingarnar í nýrri Opel Astra og VW Golf munu verða á http://www.autoexpress.co.uk/. Hér fyrir ofan er efri myndin af Astra og neðri af Golf og er ekki betur að sjá en Astra vinni mikið á Golf með nýrri kynslóð. Spennan verður að sjá hvernig nýr Focus verður, en hann kemur 2004 og Ford er í engri aðstöðu til að slá við slöku.
Ég er ábyggilega ekki sá eini á áhugamálinu sem fíla svona myndir af hreinræktuðum fákum með orustuflugvélum. Skaðar ekki að bíllinn er Lamborghini Espada S3 (enn einu sinni) og flugvélin frá hátindi bulluhreyfla í flugvélum, North American P51D Mustang. Meira um þennan glæsivagn á http://www.lamborghiniregistry.com/Espada/Espada3/9360.html - besta Lamborghini vefsetrinu.
Rakst á þessa glæsilegu mynd af Citroën SM á http://www.wirehub.nl/~tqdesign/cw-sm.htm. Mig dauðlangar í svona veggmynd til að gera íbúðina heimilislegri!