Myndin var tekin af TF-EXI á flugvelli Flugmódelfélags Suðurnesja í Grófinni, Keflavík þann 11.júní sl. rétt fyrir kl.23.Myndavél Canon A200.
Loksins eru komnar þokkalegar myndir af Bristol Fighter á vefinn! Ég get ekki beðið eftir að eitthvað bílablað komi höndum á svona bíl og segi hvernig hann er svo í rauninni. Myndin er tekin af http://www.bristolcars.co.uk/BristolFighter.htm sem er heimasíða Bristol fyrir Fighter. Þar má finna fleiri myndir af herlegheitunum, en gætið að þær eru stórar og síðan því hugsanlega hæg.
Nú er búið að birta myndir af því hvernig innréttingarnar í nýrri Opel Astra og VW Golf munu verða á http://www.autoexpress.co.uk/. Hér fyrir ofan er efri myndin af Astra og neðri af Golf og er ekki betur að sjá en Astra vinni mikið á Golf með nýrri kynslóð. Spennan verður að sjá hvernig nýr Focus verður, en hann kemur 2004 og Ford er í engri aðstöðu til að slá við slöku.