kíkið á www.spoilers.com
Nýr og endurbættur Toyota Avensis er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Bíllinn hefur verið tekinn í gegn bæði að innan og utan og á hönnun hans að falla sérstaklega að kröfum evrópumarkaðar þar sem Toyota hefur mikinn áhuga á að auka hlut sinn. Enda er bíllinn hannaður af ED2 hönnunardeild Toyota í Nice en Toyota gerir ráð fyrir að helstu keppinautar í Evrópu verði Opel Vectra, Ford Mondeo og Volkswagen Passat.
Það er mín hógværa skoðun á skjön við flesta sem titla sig fræðimenn á þessu sviði að hvorki Ferrari 250 og 275 hafi verið fallegir bílar en 330 GTC markar að mínu mati upphaf að því að Ferrari fari að vera augnayndi. Ég veit ekki hvort hann er Pininfarina hannaður eins og flestir frægustu Ferrari bílarnir en þessi bíll frá 1966 hefur til að bera fínleika í línum sem var að mínu mati áður óþekktur hjá Ferrari.