Þetta gleður vonandi einhverja. Skv. heimildum mun Mazda RX-8 verða í Gran Turismo 3 og hefur Mazda unnið náið með framleiðendum leiksins. Ekki mikið að marka en þeim sem prufukeyrði líkaði samt vel! :)
Hér má sjá Porsche 911 Carrera eftir nýjustu útlitsbreytinguna en nú er framendinn ekki ólíkur 911 Turbo. Að mínu mati er þetta engin framför og bíllinn er farinn að líta út eins og langur GT krúsari. Sárabót er þó að ný vél er komin, 3,6l í stað 3,4l og með henni er meira tog og 320 hestar í stað 300.
Mazda Cosmo var fyrsti bíll Mazda sem notaði Wankel eða Rotary vélina. Þetta var 110 hestafla bíll (síðar 128) hestöfl og náði tæplega 200 km hraða. Persónulega finnst mér þetta mjög fallegur bíll og þetta tímabil í sögu japanskra bíla er einkennandi fyrir frábæra hönnun og bíla um margt minnistæða og keimlíka því besta frá evrópu.