Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.770 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

subaru 1800 GL (10 álit)

subaru 1800 GL dremurinn er að komi aftur á götuna það verður besti dagur lífs míns:D

Spánarferð til Stefan Everts (15 álit)

Spánarferð til Stefan Everts Ég og Heiðar skelltum okkur í æfingabúðir Stefan og Harry Everts frá 16-24 feb núna síðastliðinn. Þetta var ótrúlega skemmtileg ferð og var okkur kennt heilmargt sem mun koma sér vel. Brautirnar voru geggjaðar en fyrstu 2-3 dagana var reyndar rigning og töluverð drulla, en maður fékk bara meiri æfingu út úr því.
Manni leið bara eins og factory gaur þarna..það var bara mechanic sem sá um hjólið þitt og fékkstu það alltaf á nýjum dekkjum og tandurhreint tilbaka. Síðan fengum við oftast far með sjálfum Stefan Everts uppí braut og var það svolítið skrítin tilfinning að sitja bara með honum í framsætinu að chilla eitthvað og spjalla við hann. Mjög skemmtilegur náungi.
Ef þið hafið spurningar þá endilega spyrjið :)

Engine (6 álit)

Engine Constellation hreyfill í ræsingu.

Trans Am WS6 (14 álit)

Trans Am WS6 Pontiac Trans Am WS6, með LS1 mótor og um 320 hestar, 4.9 sek í 100 óbreyttir. Að mínu mati með fallegustu bílum sem hafa verið framleiddir.

'94 Boss Mustang 429 (16 álit)

'94 Boss Mustang 429 Þetta tryllitæki bjó verkfræðingur hjá SVT að nafni John Coletti til á sínum tíma með því að skella Boss 429 vél í ‘94 SVT Mustang Cobra.

Útkoman var þessi gæða 855 hp, 790 lb.-ft. stöng sem fór 0-60mph á 1.9 sek, 0-100mph á 5.5 sek og kláraði kvartmíluna á 10.55 sek á 135.05 mph (217.3 km/klst) hraða.

Til samanburðar fer Bugatti Veyron 0-60mph á 2.3 sek og kvartmíluna á 10.8 sek, svo Mustanginn er í hraðari kantinum fyrir flesta.

’94 Boss Mustang 429 fór aldrei í framleiðslu.

p.s. ekki væla í mér um að Veyron og Boss séu sambærilegir bílar þar sem þeir hafa hvor sína eiginleika, ég er bara að bera þá saman til að sýna hversu rosalegur Boss Mustang er.

Icechallenger (6 álit)

Icechallenger Icechallenger sem fór á pólinn árið 2006 með Gunnar Egilsson fremstan í flokki:)

Maninn fastur :) (21 álit)

Maninn fastur :) Maninn fastur eftir smá snjó-ævintýri :)

TF-JMB (1 álit)

TF-JMB Dash 8 að lenda á 19

Mika Hakkinen (2 álit)

Mika Hakkinen Mika Hakkinen



hef ekki tengil, dl henni:')

Chrysler 300C (25 álit)

Chrysler 300C Var á einum svona yfir eina helgi og ætlaði að drífa mig í að skrifa grein um bílinn.

Það má búast við henni fyrr en seinna.

Allaveganna þá er þetta 5,7 lítra Hemi vél sem er 370 hestar og 530 NM tog.

Í þessum bíl sem er stórlega byggður upp á W210 Benz bíl er mjög skemmtileg 5 gíra sjálfskipting sem kemur m.a frá Benz.

Í þessum bíl var allt. Rafmagn í öllu, sjónvarp og DVD fyrir krakkana, og það sem kom mér mest á óvart að þrátt fyrir allann kraftinn og stærðina á vélinni þá eyddi hann bara milli 14 og 17 lítra innannbæjar á gjöfinni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok