Ég vissi ekki alveg hvar ég átti að setja þessa grein en ákvað að setja hana hér þar sem um tísku er að ræða Takk:D

Ok ég vil koma skoðunum mínum á framfæri í sambandi við bolina sem eru mikið í tísku núna og bolirnir sem ég er að tala um er t.d. NIRVANA og Che Guevara bolirnir. Og þá er ég að tala um þegar maður sér manneskju í NIRVANA bol og maður veit að hún hefur aldrei hlustað á þessa tónlist og veit valla hvernig tónlist þetta er.
Eða þegar maður sér manneskju í Che Guevara bol.
Ég veit ekki hvort ég er ein um þetta en mér finnst virkilega asnalegt að sjá manneskju gangandi um í þessum bolum sérstaklega þegar maður veit að hún hefur ekkert vit á þessu og þá sérstaklega með Che Guevara þegar manneskjan veit ekkert um skoðanir þessara mans eða veit hvað hann gerði.
Og eina ástæðan fyrir því að þau ganga í þessum bolum er af því að allir gera það.
Ég er til dæmis mikill NIRVANA aðdáandi en vil helst ekki ganga í þessum bolum bara út af því að ég vil ekki að það verði stimplað á mig að ég sé manneskja með ósjálfstæðar skoðanir sem er búin að láta heilaþvo mig af fólkinu í kringum mig.

Hafi þið lent í því að labba upp að stelpu sem er í NIRVANA bol og svo spyr maður eitthvað út í þetta er eina ástæðan fyrir því að hún gengur í bolnum hvað Kurt Cobain er sætur.
Vá hvað mér finnst þetta asnalegt:S

Þess vegna finnst mér að fólk ætti aðeins að hugsa áður en það æðir út í búð að kaupa sér svona bol og geta að minnsta kosti svarað einhverju um hljómsveitina/manneskjuna sem það er með framan á sér.

Ég er ekki bara að tala um þessa boli heldur margir fleiri.
Og plíz ekki fara að dæma það að ég sé bara smástelpa sem hafi ekkert vit á tónlist eða nokkru öðru.

Takk
Kv…helgamf88
*—–don´t worry be happy—–*