Hvað er það? Sá svo mörg skemmtileg svör á msn þræðinum að mér datt í hug að gera svona þráð um reeeal life.

Ég haaaata mest af öllu þegar ég er að tala við e-n og sá aðili segir bara ‘mhm’ við því sem ég segi (þurrt já er líka pirrandi) sama hversu óáhugavert eða áhugavert það er. Vann með einni svona stelpu í svona 3 tíma af vinnudeginum og reyndi stundum að gera þessar þagnir á meðan við vorum að vinna bærilegar með því að segja eitthvað inná milli og það eeeeina sem hún sagði nokkurn tímann var ‘mhm’, BARA það. Mig langaði að lemja hana með steikingarpönnu. Eða djúpsteikingarpotti.

Svo líka svona félagslega heft fólk sem fer að blanda sér í samræður hjá mér og einhverjum öðrum þótt ég og hin manneskjan þekkjum hann/hana ekki neitt.

Líka fólk sem segir eitthvað ógeðslega ófyndið og hlær svo geðveikt að sjálfu sér og maður bara ‘já…fu’. Og fólk sem talar ógeðslega lágt þannig að maður heyrir ekkert í þeim.