Ég er semsagt staddur útí Flórída, og ég ákvað að vera sniðugur og fara út að hlaupa áðan.

Ég er með alveg ágætlega sítt hár, og var bara úti í góðum fíling að hlaupa.

Svo kem ég inn, allt í góðu, fer bara í rólegheitunum upp í herbergi og klæði mig úr fötunum og fer inn á baðherbergi.

Alveg slakur, kveiki á sturtunni og fer fram að sækja handklæði.

Stíg inn í sturtuna, er bara eitthvað að skola mig og næ svo í sjampó og er bara eitthvað að þrífa hárið á mér þegar ég finn eitthvað hart í hárinu, svona einsog einhver köggull.

Einsog ekkert sé tek ég þetta úr, held að þetta sé laufblað eða eitthvað þvíumlíkt, en nei, sé ég ekki í hendinni minni, stærsta fucking geitung sem ég hef á ævi minni séð, og það LIFANDI.

Á undir tveimur sekúndum er ég kominn fram og öskra ‘'SJJJJÍÍÍIIITT’', þar sem mér hefur aldrei brugðið jafn mikið.


Skemmtilegt stöff.
baldvinthormods@gmail.com