Hmm.. ég er að horfa hérna á sjónvarpið á tónlistarmyndband með þarna Snoopdog og einhverri gellu sem ég hef nú séð oft áður að gera alltaf það sama og þær eru dansandi eins og einhverjar strippgellur.. Svo sá ég einmitt stelpur á 17. júní allar í mínipilsum, og þetta var ekki beint veðrið fyrir það… eruði að sjá einhverja tengingu þarna?
Ef fyrirmyndirnar eru dansandi og klæddar eins og stripparar eða mellur þá fara krakkar að gera það líka og mér finnst þetta bara asnalegt.
Eruði sammála mér eða eruði ein af þessum sem fylgja þessu eftir?