Það er allstaðar verið að tala um þessa helvítis fuglaflensu og fólk er næstum að spá heimsendi út af þessu og eitthvað. Það var í fréttunum í gær að einhver kona væri búin að kaupa fullt af dósamat og eitthvað ef þessi flensa kæmi hingað. Vá, hvað égvarð pirraður á að heyra það. Þessi fuglaflensa er öll uppblásin. Það deyja 40 sinnum fleiri eða eitthvað úr krabbameini eða hungursneyð á einum degi en fólk er búið af deyja af þessari fuglaflensu síðan hún byrjaði. Fólkið sem hefur dáið er í þróunarlöndunum og þar deyr fólk næstum úr kvefi. Þetta er ekkert merkilegt. Það koma alltaf upp svona heimskar flensur öðru hvoru. Hættiði að vera með áhyggjur út af þessu. Þetta er allt blásið út af fjölmiðlum.
Varð bara að létta þessu af mér. Ekkert skítkast.
“Life is what happens to you while you're busy making other plans” - John Lennon