Jæja, þetta er örugglega ekki fyrsti korkurinn um þetta en nú er þetta byrjað að verða svolítið undarlegt.

Ég byrjaði að fá svona smá bólur fyrir hálfu ári og þá var þetta ekkert ég kunni ekkert að gera við þetta og lét þetta alveg í friði og drakk kók, borðaði nammi og fleira svona.

En það sem mér finnst svona undarlegt er að ég er bara að fá meira og meira núna. Og afhverju? Jú, það er þannig að ég hætti í kókinu fyrir tveimur til þremur mánuðum, minnkaði nammið og miklu meira en helming, reynt að borða mikið af ávöxtum og drekka 2 lítra af vatni á dag.

Og fyrir svona tveimur vikum þá fór ég til húðlæknis og hann leit á þetta því þetta var orðið hrikalega slæmt sko. Og hann lét mig fá lyfseðil sem voru með 2 pökkum að Ery Max töflum sem eru svona sýklalyf / pensilín kann ekki alveg að skrifa það EN. Svo með þessu fékk ég krem sem heitir skinoren.

Ég er búinn að éta þessar töflur nú síðan þá / kyngja þeim með vatni og setja þetta krem á mig á hverjum einasta degi síðan ég fékk það.

En mér finnst þetta enþá vera að versna allveganna núna, svo ekki nóg með það að vinir mínir sem eru búnir að vera í sumarfríi í langan tíma og ekki séð mig, ég er eiginlega hræddur um að koma mikið nálægt þeim lengur því þeir mundu örugglega fara horfa mikið á ennið ( er bara með á enninu alveg hrikalega ). Mamma, frænka mín og nokkrir vinir segja að þetta sé að batna en þetta er slæmt samt núna.

( b.t.w. ég er þrettán ára | Ég er búinn að senda þetta inná “ heilsa ” og ég er búinn að vera að rápa á netinu í klukkustund og fékk ekkert svar svo ég sendi inn hér )