Jæja loks kom að því að ég var rekinn heim úr Unglingavinnunni …

Ég hata flokkstjórann minn sjáðu til, og hef rifist mikið og tuðað og verið mjög leiðinlegur við hana (sem hún á fullkomlega skilið) og í dag rak hún mig og félaga minn heim.

Nú spyr ég, má hún það?
Svo dregur hún af manni (ekki bara mér, heldur öllum strákunum í hópnum) korter hægri og vinstri …

Finnst þetta frekar fáránlegt … Annars fór ég nú bara að hlæja að henni þegar hún sagði okkur að drulla okkur heim - hélt að hún væri bara að grínast. En svo var ekki, en mér fannst það samt sem áður skondið.

Má þetta?