Leyfist mér að spurja hvort að einhver geti leiðbeint mér og mínum hóp í hvaða heimi væri sniðugt að spila?

Hvar er hægt að fá upplýsingar um heima?

Ég hef spilað tölvuleiki sem gerast í Faerun, svo að ég hefði viljað spila þar, en þá þarf maður að spila eftir aðeins öðruvísi útfærðum reglum er það ekki?
Allavega með öðruvísi guði en gefnir voru upp í Players Handbook og svoleiðis lagað.

En ef við myndum spila í heiminum sem reglubækurnar (Players Handbook, Monster Manual og Dungeon Masters guide) eru skrifaðar utan um (veit ekki hvað sá heimur kallast) hvar getur maður fengið upplýsingar um hann? (Svosem kort af honum og upplýsingar um bæi, þorp, borgir og landslag.)

(Við spilum D&D 3,5)