Eftir frækna sigurgöngu og mikinn gullpeningagróða hefur Krod-Nojr Krivnetos ákveðið að kveðja leikvanginn og skoða heiminn.

Ég er orðinn svolítið þreyttur á Huga-Arena en það var rosalega skemmtilegt á meðan því stóð. Þar sem það virðist enginn geta unnið characterinn minn er einnig lítið fyrir mig að gera hér (hohoho). Ég vil bara þakka öllum þeim sem ég hef spilað með fyrir góða skemmtun. Flestir leikirnir hérna voru mjög skemmtilegir og það var gaman að dæma líka.

Ég vildi bara láta Krivnetos “kveðja” í stað þess að ræða ekkert um hann meir og láta hann hverfa sporlaust. Hans 8 sigrar á móti 0 töpum hafa verið ristir á steintöflu fyrir utan Arena og hann kíkir á hana eftir tíu ár til að sjá hvort einhver hafi bætt metið. ;)