Hér er skemmtileg mynd af Phil Mickelson eða “Leftie” þar sem hann æfir stuttu púttin með hjálp Scotty Cameron Futura pútters og lítils æfingatækis.
Spánverjinn Miguel Angel Jiménez sigraði á Opna Portúgalska sem lauk á Algarve í dag og fór um leið upp í efsta sæti peningalistans á evrópsku mótaröðinni. Hann lék lokahringinn á 67 höggum og endaði á samtals 16 höggum undir pari og vann öðru sinni á mótaröðinni í ár. Sigurinn gulltryggði honum sæti í Ryder Cup liðinu.