Ég er þegar búinn að senda kork um þetta, en þátturinn í dag kallaði á grein.
Ég hugsa að flestir séu sammála um að tad sé skemmtilegri karakter en Paul, en Paul er á einhvern undarlegan hátt búinn að þroskast finnst mér. Fyrst var Paul alltaf í fýlu við Tad út af engu, en undanfarið hefur mér fundist Tad vera bara einkar leiðinlegur við Paul. Eins og þegar hann fékk sitt tækifæri sem D.J. gat hann ekki hætt að kalla Paul lúser út af engu!!!! Tad er líka svo óheiðarlegur gagnvart Harold og Madge, og síðan segir hann við og við að þeim sé sama um hann. Síðan núna er Paul nýbúinn að fá tækifæri í rugby og Tad gerir bara grín að því…….. Hvað finnst ykkur?
______________