Sko, ég var að hugsa núna áðan hvað ég ætti að gerast hetja í kvöld og segja pabba mínum frá kærasta mínum.
Ég veit ekki hvernig ég á að orða það eða við hverju ég á að búast því að þessi strákur er ekki beint svona draumatengdasonurinn, bætir ekki úr skák að hann sé eldri en ég.

Svo að ég bæti eitthverju við þá ætlaði ég að varpa þeirri sprengju á hann í leiðinni að ég þyrfti að fara á pilluna. Akkúrat á þeim tímapunkti er ég að búast við að ég verði læst uppá háalofti það sem eftir er af unglinsárunum mínum.

Mig vantar hjálp, hvað á ég að segja, hvar á ég að byrja? Hvernig á ég að koma í veg fyrir að ég fái að lifa lífinu mínu áfram?

Mig vantar svar.. núna