jæja… þá kemur það…

ég kynntist stelpu fyrir næstum þrem mánuðum og varð hrifinn af henni… komst svo örfáum dögum eftir það að því að hún var líka hrifin af mér… svo gerðist það eitt kvöldið að ég fylgdi henni heim og við kysstumst fyrsta kossinum á tröppunum fyrir utan hjá henni… eftir það byrjuðum við síðan saman einvherntímann nokkrum dögum seinna…

Þetta var abra svona hrifning fyrst og ég vissi að hún myndi fara til útlanda í skóla eftir sumarið.. ég bjóst alltaf við því að það yrði leiðinlegt en mér fannst ekkert eins og það yrði mikið mál…. svo þegar það leið á sumarið þá urðum við nánari og nánari…
svo loksins kom að því að ég sagði þessi þrjú orð… “ ég elska þig ” og hún gerði akkúrat það sem ég vonaðist eftir og sagðist elska mig líka… eftir þetta eyddum við hverri mínutu saman… við vorum alltaf saman og töluðum alltaf saman í síma í hverri pásu í vinnunni og vorum aldrei í neinni fýlu við hvort annað.
ég hef aldrei átt alvöru kærustu áður þrátt fyrir að vera að verða 18 ára.
ég elskaði hana og hún elskaði mig… eikkað sem ég hef aldrei fundið fyrir áður… en núna fyir rúmum klukkutíma síðan steig hún uppí flugvél og flutti til danmerkur… mér hefur akdrei liðið svona illa á ævi minni. mér langar að æla… og deyja síðan í ælupollinum… og ég veit ekkert afhverju ég er að skrifa þetta hérna… ég bara verð að deila þessu og ég ætla bara að fara og gráta í koddann minn núna…
takk fyrir að lesa…