Miðnætur-opun verður í Skífunni í kvöld (sunnudag) vegna útgáfu snillingsins Nick Cave á sextándu plötu sinni Nocturama. Einnig verður til sölu tveggja-platna útgáfa á verði eins í takmörkuðu upplagi. Platan átti að vera gefin út 25. feb en eithvað flýttist það.
Nei ég var ekkert á því að skipta strax um mynd, en nei þetta er ekki Tommy le jones og heldur ekki Tom jones eins og eitthver svaraði, þetta er enginn annar en meistarinn Chris Cornell
Coverið á frumraun Prog-Rock hljómsveitarinnar King Crimson, In The Court Of Crimson King sem gefin var út 1969 sama ár og hljómsveitin var stofnuð. Þessi plata er í miklu uppáhaldi hjá mér vegna þess hvað Mellatron er notað mikið í þessum yndislegu lögum.
Um þessar mundir er verið að setja upp söngleikinn Jesus Christ Superstar í borginni Eskilstuna í Svíþjóð og var hljómsveitin Pain of Salvation fengin til að sjá um rokkhlutann í tónlistinni. Reyndar gat trommari þeirra ekki verið með, svo að söngvari sveitarinnar, Daniel Gildenlow, brá sér bara á trommurnar. Myndin sýnir s.s. það orhcestra sem sér um tónlistina, þmt. Pain of Salvation aftast.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..