Sjáldur augna þinna er hulið grámyglaðri gláku sem rignir tárum og skýjuð augnhárin sveipa vindinum til og frá. En upp styttir um síðir og sjón þín endurheimt vermir okkur sem syndguðu á meðan þú sást ekki til. -Fjárans rigning er þetta alltaf hreint,,, Zorglubb.
Maður tekur eftir því að sumir hér setja styttri ljóð sín á vitlausa staði, þar sem þessi korkur er fyrir umræður um ljóð og ljóðagerð en korkurinn fyrir neðan; sem er fyrir ljóðin sjálf. Bara smá ábending.
Svariði nú,,,, þessi spurning hefur komið í heimspekiprófi í framhaldsskóla… Svolítill húmor kannski hjá kennaranum,, en þessi spurning er samt sjálfsagt grundvöllur heimspekinnar?
Jæja, mig langar bara svo mikið að nöldra. nú hefur cosmo ekkert komið inn á hugi.is í þrjá daga og spurning hvort hann komi fyrir þessa helgi. Ég hef séð það að á mörgum þeim áhugamálum sem ég hef kíkt inná, eru tveir eða fleiri admins. Sem er fínt mál og tryggir stöðugt flæði í áhugamálinu, svo er auðvitað undir okkur smásöguhöfundum komið að halda lífi í því með því að dæla inn sögum af mikilli íþrótt =) Ég vil taka það fram að ég er ekki að skjóta á þig Cosmo, heldur benda á hugmynd að...
Hehe, ég er enginn hip-hop gaur og tengist menningunni varla neitt. En mig langar að þyrla upp smá moldviðri ef ég get. Hér er saga ein sóðaleg af manni er hét Erpi framahóru tískunegra og atvinnugerpi sjaldan sést svo annað eins rotið örverpi sem geiflar sig með gullið sitt helvítis merkikerti Án leikskólans í kringum þig þú getur sjálfsagt ekkert rímur þínar drasl og ekkert finnst svo í þeim markvert á skjánum johhny naz eða blaz fituhlaz að vera meir´en lúkkið? alltof mikið braz Hoppar um...
Hvar eru linkar á innlendar og erlendar körfuboltasíður???? Upplýsingar um stöðu liða í NBA og íslenska boltanum? Seinustu leikir og svoleiðis,,,,, Ég kíki nú ekki oft hingað en mér finnst þetta áhugamál ekki ríkt af efni.
Hvaða Windows kerfi er þjálast fyrir þrívíddarvinnslu?? Er með 300mhz 128mb innra minni drasl skjákort sem ræður ekki við neitt (kaupa mér nýtt) voodoo 2
Mig vantar hræódýrt eða gefins skjákort. Kortið mitt dó fyrir nokkru og fékk gefins hreinasta drasl kort sem gefur ekki meira en 800x600 upplausn í WIN Mig vantar bara eitthvað betra fyrir kúk og kanil.
Úff, ég heyrði um daginn í viðtali Sigurjón og Betu við Gunnar í krossinum. Ég tek það fram að ég er í engu sammála ofsatrúarrugli Gunnars krossara, en það var bara fyndið hvað hann tók Betu í rassgatið á meðan Beta Rokk kom engu út úr sér nema barnalegum og útþvældum gelgjupirring í formi ömurlegra skota og röksemda. Gunnar hló bara að henni =) Eftir þennan þátt er ég sannfærður um að Beta er soddan Ljóska með gelgjustrípur í hausnum.
Þetta er nú ekkert meira en fikt, en mér þætti gaman að vita hvort mér miði í rétta átt :) <a href="http://blacksun.vortex.is/schizo.mp3“>schizo</a> <a href=”http://blacksun.vortex.is/freakz.mp3">freakz</a
Daginn, ég var að breyta síðunni minni,,, endilega skoðið og segið mér hvað ykkur finnst. :) <a href="http://blacksun.vortex.is/index.html"> Zorglúbb</a> ef þessi linkur hjá mér virkar ekki = http://blacksun.vortex.is Glúbbi.
Daginn, var að koma nýju útliti í gagnið, langar að vita hvað ykkur finnst og hvort þið takið eftir dauðum hlekkjum eða öðru :) <a href="http://blacksun.vortex.is/index.html"> Linkur</a> ef þessi linkur hjá mér virkar ekki = http://blacksun.vortex.is Glúbbi.
Seinasta grein var póstuð 20 nóvember, myndir eru uppfærðar öööörsjaldan og tilraunastofan ekkert að uppfærast neitt… Hvað er í gangi? Eru menn svo önnum kafnir í að væla kreppuna og verkleysi að þeir hafa engan áhuga á þessu, eða eru líta kannski flestir hérna á þetta sem kvöð og vinnu frekar en áhugamál? Ég er að bulla margt út í loftið núna en ég lýg því ekki að þetta áhugamál er frosið. -glúbbi :)
Þokkalega spúki mynd, minnir mikið á bylgjuna sem gekk yfir tónlistarmyndbandagerðina fyrir ekki svo löngu (marilyn manson, david bowie myndbönd og fleiri)
Rennur líf mitt sem lækur framhjá tækifæranna merktum steinum reyni að grípa í en sleipt takið heldur ei renn að feigðarósi þynnist út og hverf í hafið
en nú sá sem heiminn átti skapaði og sáði mannverum tveim og dýrum, sálum samvisku sér freistingar éta burt sárt sakleysið og veröldin válynda hverfur og deyr og birtist. Þetta ljóð er hálfpartin tileinkað ákveðinni gerð ljóða sem maður tók vel eftir þegar maður lærði um ljóð í skóla. Veit nú ekki hvað þetta form er kallað. Annars, ef fólk er að velta vöngun um form míns ljóðs þá er þetta syndaeplið. (svo kemur þetta sjálfsagt asnalega út í öðru letri en skítt með það.)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..