Ókei, það er örugglega búið að telja flest allt upp en ég ætla samt að vera með:) Kostir: Án efa vatnið, ég hata að vera í útlöndum og þurfa að drekka flöskuvatn. Ferskt loft. Landslagið, það er fallegast í heimi að fljúga yfir Ísland. Sú staðreynd að Ísland sé eyja og þurfa ekki stöðugt að standa í landamæradeilum. Frelsi. Það er nóg pláss fyrir alla:) Gallar: Það er erfitt að finna M&M í bláu pokunum. Veit reyndar ekki með höfuðborgarsvæðið en það er allavega í feluleik á Akureyri....