Var að rifja upp þegar ég fékk Nevermind í afmælisgjöf og vildi skila henni því þetta væri eitthvert þungarokk. Sú tónlist hlustaði maður ekki á ef Pixies og aðrar nýbylgjuhljómsveitir voru búnar að vera í spilaranum. Þetta fór ekki saman. En einhvern veginn sætti maður sig við þetta á endanum og var dálítið ánægður að menn voru almennt farnir að hafa meiri áhuga á rokki. En samt er þetta ekki hljómsveit sem skilur mörg gullkorn eftir sig enda kannski ekki hægt að ætlast til þess af öllum...