Þvílík skemmtun! Ótrúlega spennandi að horfa á þetta. Ágætis leikur hjá Íslandi í dag. Gaman að sjá flesta í liðinu koma með góð framtök. Róbert kom sterkur inn og skoraði mikilvæg mörk, Siggi Bjarna skoraði mark á mikilvægum tíma, Dagur stóð sig vel og Patti tók leikinn í sínar hendur á einum leikkaflanum. Reyndar langaði mig að hrósa patta. Snemma í leiknum sneri hann sig greinilega á ökkla, ekki illa en nóg þó þannig að sumir hefðu ekki haldið áfram. Patti hinsvegar píndi sig áfram. Oft...