Gaman væri að heyra hvaða þáttur mönnum finnst skemmtilegastur og af hverju? Mér dettur í hug þátturinn sem var í síðustu viku þegar Chandler sefur hjá systur Joey. Hann er algjör snilld, sérstaklega endirinn þegar gaurarnir fara allir upp og ætla að skamma gaurinn sem að er með læti, hehe. What if þátturinn var líka góður og svo fannst mér Bruce Willis algjör snilld í þáttunum sem hann var.

Einnig spurning hvort menn eigi ekki eitthvað favourite Friends moment?! Mér dettur t.d. strax í hug eitt af mörgum þegar Joey er í öllum fötunum hans Chandlers, going commando og segir “I might not wanna do any, you know, lunges!”

Hvað finnst ykkur folks???