Ég er á vissan hátt sammála DiamondDog. Kóreubúarnir spila hraðan og skemmtilegan bolta, en auðvitað hafa þeir komist langt á heppninni og vafasömum dómum. Það má nú samt alveg velta því fyrir sér hvort úr hefði orðið mark þó línuvörðurinn hafi ekki veifað að boltinn væri útaf, því Kóreumennirnir voru greinilega hættir þegar markið kom… Hmmm… Man einhver eftir HM á Ítalíu? Ef mig minnir rétt þá fengu nú Ítalarnir smá dómarahjálp í einum eða tveimur leikjum ;)