Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

xark
xark Notandi frá fornöld Karlmaður
750 stig

Re: ATH Allir lesa!!!!!!!!!!!!!!!!

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
tja, þú ert þá bara að styrkja björgunarsveitirnar í staðinn. Það er varla neitt mikið verra. Nema þú hafir verzlað í Gullborg. En þá ertu að styrkja frænda minn svo þetta er allt saman í góðu lagi :D :D

Re: búin að snúa sólarhrignum við!!!!:@

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jamm svona er þetta. vakna 4, sofna 4-5 :P vaknaði samt alveg um hádegið í fyrsta skipti í dag :)

Re: Innflutningur á lággjaldaverkafólki

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jájá, sjálfsagt eru þeir það. Þeir yrðu kannski líka ánægðir að fá 50 kr á tímann af því það er hærra en í Kína og því gengur ekkert að segja þetta. Það verður auðvitað að fara eftir íslenskum kjarasamningum. Fyrir utan það að kínverjarnir myndu græða meira á því :P að þá þýðir ekkert að eyðileggja íslenska kjarabaráttu af því að einhver skítalaun hérna eru ævilaun í Kína! Þetta er ekki góðgerðarstarfsemi.

Re: Minnst 24.000 látnir í Asíu!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
jamm, ætli það hafi ekki uþb jafnmargir farist af náttúruhamförum í Asíu og af mannavöldum í Írak..

Re: Innflutningur á lággjaldaverkafólki

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það hefur komið fram hjá vinnumálaskrifstofu Austurlands að mjög erfitt hafi verið fyrir Íslendinga að fá vinnu hjá Impregilo. Þannig að það er ekki “leti” Íslendinga sem er ástæðan. Impregilo sýnir þeim bara engan áhuga. Þeir vilja bara þrælana sína.

Re: Innflutningur á lággjaldaverkafólki

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“ástæðan fyrir því að þeir eru mjög ánægðir með þau laun er sú að það eru 10 - 20 föld laun sem að þeir hagfa í kína…..og þeir þurfa engu að eyða í neitt hér á íslandi nema hugsanlega sígarettur (ef þeir þá reykja)” dah, er ekki allt líka 10-20x dýrara hérna ef ekki meira ? Það er búið að koma upp, eftir áratuga baráttu hérna, ákveðnum grunnréttindum starfsmanna:launakjör,aðbúnaður og þess háttar. Svo kemur hingað fyritæki með erlent starfsfólk, sem er vant þrælahaldi og ætlar sér að nota...

Re: Innflutningur á lággjaldaverkafólki

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
já, Impregilo hótar vinnumálastofnun með því að segja þeim að gefa út atvinnuleyfi fyrir kínverjana, annars verði engin stífla !? Það er síðan búið að gefa leyfa fyrir þessum 54 kínhverjum.. "Stjórnvöld hafa ákveðið að veita Impregilo atvinnuleyfi fyrir 54 kínverska verkamenn til starfa við Kárahnjúka. Alþýðusamband Íslands telur lög brotin og segir að tekin hafi verið ákvörðun sem eigi sér engin fordæmi á íslenskum vinnumarkaði. ASÍ hefur óskað eftir fundi með félagsmálaráðherra um málið.“...

Re: 3 hvolpar fást gefins

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
já glemydi að þeir eru 7 vikna og Sími: 565-8581 ( Sigríður ).

Re: Fjárhagsaðstoð til flóðsvæða...

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þessir peningar frá esb eru bara til þess að finna út hvert alvöru peningarnir fara :) En framlag bandaríkjanna er nú mjög lítið í raun. Þótt að framlag okkar ríkis(5 milljónir) sé ekki mikið er það samt hlutfallslega 5x meira en framlag bandaríkjanna ! En þeir hafa smá afsökun. Þeir þurfa að eyða þessari upphæð á hverjum ~ 2 klst í írak haha.

Re: Brennuvargs-aumingjar í Grindavík

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Grindavík : 2.382 íbúar (2002) ef það voru 200 manns sem tóku þátt gerir þetta 8,4% íbúanna í Grindavík :)

Re: Brennuvargs-aumingjar í Grindavík

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
neinei það þarf ekkert að vera. fer eftir því hvað það eru mörg amper og viðnám í byssunni..2000 volt þarf ekkert að skaða neitt sérstaklega ef amperin eru mjög lítil..

Re: Hvernig er desktopið þitt?

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
http://img141.exs.cx/img141/9326/desk7tx.jpg já loksins kom þessi póstur :P

Re: Þetta Hlstats hjá og Vodafone

í Half-Life fyrir 21 árum, 5 mánuðum
uhm já, einum of háar tölur þetta. Réttara sagt bara bull. server history: frá 16. des lol amk eru ogz serverarnir nýlegir.. Til samanburðar má geta þess að ég man eftir því þegar ég náði á top 10 á ifrags yfir allt árið 2001 og var þá með 11,000 kills og 200 og eitthvað klst skráð. Þá reyndar skráðist bara ef maður kláraði borðin. Veit ekki hvort það sé þannig í þessu en allavega að þá er ekki sjéns að einhver sé að ná 40,000 frags eða 1000 klst frá 16.des hahaha. Þetta er svona 10-50X...

Re: Jólagjafir

í Half-Life fyrir 21 árum, 5 mánuðum
5k í tölvulistanum bol, peysujakka(?), sokka, konfekt 2 dvd myndir, 2 bækur og á eftir að fá lítilræði í pening :P

Re: Svara grein neðst á greininni? - Stjórnendur A.T.H

í Hugi fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ha, ekki flat mode? Ekki ertu að klikka á hvert svar hérna :)

Re: Stærsta hryðjuverk sögunnar

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 5 mánuðum
það var nú bara 300-400.000 samtals. náði ekki 200.000 í Evrópu.

Re: Afhverju Bandaríkin en ekki Rússland?

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það þykir eiginlega ekkert sérlega fréttnæmt að stjórnvöld í Rússlandi séu eitthvað að flippa, það hefur bara alltaf verið þannig :) Kannski dáldið öðruvísi að þegar bandaríkin, sem hafa talist vera mesta lýðræðisríkið og allt það, sé nú stjórnað af einhverjum trúarbrjálæðingum sem hlusta ekki á neitt nema raddir Guðs í hausnum á sér.

Re: Nýju útlendingalögin eru úldin

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Jæja, nú er komið í ljós, þótt seint sé, að þetta var bara alls ekkert útaf hjúskaparmálum.. heldur..da da ra : Þjófnað, tollalagabrot, smygl, umferðarbrot, eignaspjöll og líkamsárás. Þannig að allir hafa verið í einum stórum misskilningi :P Samt skrýtið að enginn hefur minnst á þetta fyrr nema í Sunnudagsþættinum í hádeginu og í DV. Og nú sést að það var gott að losna við hann!

Re: Stærsta hryðjuverk sögunnar

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 5 mánuðum
uhm ekki veit ég hvar þú fékkst þetta en stærsta vetnissprengjan sprengd hefur verið er 58MT og næst stærsta var 15MT.. kjarnorkusprengjur eru yfirleitt nokkur hundruð kT eða minna. veit ekki til að þær fari mikið yfir 2MT. Því getur vetnissprengja verið alveg 1000x öflugri enda er það augljóst að samrunaorkan er miklu meiri en kjarnaklofnun.

Re: jólalag

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það er nú það. ætli það fjalli um heimilisofbeldi ? nei nei- ekki lemja mig um jólin ? :P

Re: Stærsta hryðjuverk sögunnar

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 5 mánuðum
ekkert næstum jafnt..heldur margfalt öflguri.

Re: Stærsta hryðjuverk sögunnar

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 5 mánuðum
já, dresden var án ef.na versti einstaki stríðsglæur stríðsins En með kjarnorkusprengjurnar, að þótt að fyrri sprengingin sé réttlætanlegt að þá var sú seinni það amk ekki. Það liðu bara 2 dagar á milli og japanir voru ekki búnir að átta sig á hvað hefði gerst. Af hverju athuguðu þeir ekki hvort japanir myndu gefast upp og tala nú ekki um að sprengja lítið mannað svæði til að sýna japönum að ef þeir gæfust ekki upp myndu þeir sprengja borgirnar á sama hátt.. Svo má benda á að Rússar voru...

Re: Stærsta hryðjuverk sögunnar

í Sagnfræði fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Halló hefurðu enga hugmynd hvað hafði skeð áður, ráðist var á Perluhöfn, almennir borgarar létust einnig þar, en það skiptir engu máli!!” hvað ertu að bulla. um 3000 hermenn dóu þar og örfáir borgar nokkrir tugir kannski, enda var verið á ráðast á skip. réttlætir það drápa á 150,000 borgurum + jafnmarga í viðbót örkumla ?

Re: Kennedy vs. Lincoln

í Sorp fyrir 21 árum, 5 mánuðum
þú gleymdir alveg lykilatriðinu! sem hljóðar svo: Viku áður en Lincoln var skotinn var hann í Monroe, Maryland en viku áður en Kennedy var skotinn var hann í Marilyn Monroe :) En fyrir utan það er heldur frjálslega farið með staðreyndir í þessu. td það að Lincoln var skotinn í Ford's leikhúsinu, Booth fæddist 1838 og sitthvað fleira..

Re: Þetta land er að fara til helvítis

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
já svona fer verkfallið með nemendur :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok