Ég er virkilega að fíla þennan disk. Hann er virkilega frábær, hreinasta snilld. Sólstafir eru líka lang besta metal bandið hér á klakanum. Satt best að segja bjóst ég við meiri látum á þessum disk, hélt að hann yrði aðeins headbang vænni, en ég er engan veginn ósáttur við gripinn. Allavega þá eru uppáhaldslög mín á disknum Undir jökli, árstíðir dauðans, the underworld song og Í víking.