Flott grein, en mér finnst Sambíóin í Álfabakka aðeins betra en Smárabíó. Annars bæði mjög fín bíó. En já, mér finnst líka VIP salurinn í Sambíóunum flottari.
Veistu, svona to be honest, þá bara er ég hreinlega ekki viss…=S Ég er alls ekki að segja að hún sé léleg leikkona eða neitt svoleiðis, en kannski er það bara e-ð við karakterana í myndunum sem ég hef séð hana leika í…það spilar alltaf inn í.
Hún er farin að fara frekar mikið í taugarnar á mér…þ.e. karakterinn hennar í þáttunum, ekki leikkonan sjálf. Samt leikur hún þetta mjög vel, örugglega bara e-ð við Marissu sem á að virka pirrandi…en ég veit ekki ;)
Af þessum myndum sem þú nefnir sem Dark Castle hefur endurgert finnst mér Gothika skárst. Mér fannst hún bara mjög fín af svona mynd að vera, en hinar fannst mér ekkert sérstakar. Alveg sammála þessu með að þær eigi það til að detta niður undir meðalmennskuna.
Jeminn eini! Væri maður orðinn pirraður! Mig hefði eflaust hreinlega langað að segja afgreiðsludömunni vinsamlegast að troða símanum bara þar sem sólin aldrei skín og skella bara á
Flott grein um ÆÐISLEGAN leikara! Hann er snillingur bara. Velur snilldarhlutverk og hann er svo flottur og töff =) Hann er einn besti leikarinn í dag að mínu mati.
Mér fannst þessi mynd algjör hörmung. Bjóst við svo miklu meira en svo var þetta bara svona…það hefði alveg verið hægt að gera mun betur úr þessari mynd.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..