Wiruz, ég er bara alls ekki sammála þér. Ertu búinn að heyra nýju plötuna þeirra? Jónsi er með bestu lagasmiðum á landinu í dag, að mínu mati. Reyndar var lagið sem þeir gáfu út í sumar frekar lélegt, enda var það ekki eftir Jónsa, en ég mæli með því að þú hlustir betur áður en þú segir svona. Þeir eru líka mjög góðir spilarar (nema kannski Keli gítarleikari) og betri en flestir í öðrum svipuðum hljómsveitum (Írafár, L&S, ÁMS o.fl.) Mín skoðun