Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Lítill fugl (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég geng eftir afskekktum vegi Í sólskini Ég sé fugl Fallegan og lítinn fugl sem syngur svo fallega Ég segji ,,hæ litli fugl” og flauta á móti Hann kemur nær og lítur á mig Ég horfi í augu hans Og sé þá dimmann skugga Tómleika Ég kem nær honum, allt í einu byrjar að rigna Og litli fuglinn fer Ég fer heim og hugsa um litla fuglinn Mér fannst eins og augu hans minntu mig á einhvern Kannski mig Næsta dag sé ég litla fuglinn En í þetta skipti er hann ekki fljúgandi Heldur liggur hann bara þarna...

Fjarlægð (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það var kvöld, hann kom, stóð og beið Beið Eftir henni En hún kom ekki Og hann fór En svo kom morguninn og hún kom og beið Beið Eftir að hann myndi koma En hann kom ekki Þannig liðu dagarnir En einu sinni gerðist það að þau hittust og sáu hvort annað En fjarlægðin var svo mikil á milli þeirra En þau rétt náðu að segja Að þau elskuðu hvort annað En svo… Skildust þau að Og þau héldu áfram að bíða Og bíða Og bíða… Eftir hvort öðru.

Kisurnar mínar:) (9 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hæ kisuhugarar:) Ég ætla að segja ykkur frá kisunum mínum:) Fyrst er það hann Grámann hann er fæddur 15.11.2001 og er grábröndóttur húsköttur. Ég fékk Grámann í maí 2002 hjá dýralæknastofunni í Garðabæ. Það var keyrt á hann og mjaðmakúlan í honum mölbrotanaði og það þurfti að fjarlægja hana:( þau í Garðabæ fundu ekki eigendur hans(ef hann hefur nú átt eigendur)þannig að ég fékk að ættleiða hann enda féll ég alveg fyrir honum hann er svo æðislegur köttur. Fyrst þegar Grámann kom til okkar þá...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok