Það var kvöld, hann kom, stóð og beið
Beið
Eftir henni
En hún kom ekki
Og hann fór
En svo kom morguninn og hún kom og beið
Beið
Eftir að hann myndi koma
En hann kom ekki
Þannig liðu dagarnir
En einu sinni gerðist það að þau hittust og sáu hvort annað
En fjarlægðin var svo mikil á milli þeirra
En þau rétt náðu að segja
Að þau elskuðu hvort annað
En svo…
Skildust þau að
Og þau héldu áfram að bíða
Og bíða
Og bíða…
Eftir hvort öðru.