Hvernig stendur á því að þið haldið að Nágrannar eigi að fara á Stöð 3? Stöð 3 mun koma til með að gera út á skemmtiefni, það er að segja, gamanþætti. Á henni verða þættir eins og Simpsons. Friends, Alf, Seinfeld, Fóstbræður og fl. Allt gamlir þættir sem verða þá endurteknir. Einnig mun Stöð 3 sýna nýja gamanþætti. Síðast þegar ég gáði flokkast Nágrannar ekki undir gamanþætti. Heldur sápuóperu sem fellur í flokk með dramaþáttum. Þannig - EKKI ÖRVÆNTA SVONA SNEMMA.