Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Vefstjóri

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Copy-aðu bara textann inn á milli meðan þú ert að skrifa og þegar þú ert búinn og ef að netið fer í rugl þá geturðu paste-að textanum inn í Word eða e-ð og saveað hann og sent hann inn seinna.

Re: Í hverju gangið þið?

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég var nú bara í gallabuxum, hlýrabol, röndóttum bol, ljós-rauð-appelsínugulri flíspeysu og rauðum sokkum… Og úlpu og skóm inná milli.

Re: P.E.P.S.I

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jamm… Klikkaðar þessar mömmur.

Re: P.E.P.S.I

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Úff já ég þekki þetta. Reyndar er mamma mikið á móti nammi (ég drekk ekki mikið gos) og ef ég fer og næ mér í tyggjó (sykurlaust) þá segir hún mér að borða ekki svona mikið nammi! Hún segir það án þess að vita hvað ég er að fá mér… Og ef ég kannski fæ mér eitt kex eða e-ð, segir hún mér að fá mér frekar eitthvað almennilegt að borða! :/

Re: oooojjjjj

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Aha ömurlegur dagur… Annar vettlingurinn minn festist bakvið ofninn í skólanum áðan og gat ekki náð í hann þannig nú á ég enga vettlinga :'(

Re: töff...

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Frábært svona :) Þessi græni litur er líka betri en skærrauði sem JReykdal sýndi okkur þegar honum datt þetta í hug.

Re: ekki fyndið

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hahaha ég fór einu sinni í kast við það að hlusta á þetta! :D Þegar ég var búin að hlusta á þetta frekar lengi var þetta orðið svo fáránlegt að það var ekki annað hægt en að grenja úr hlátri :P En þetta er samt ekki eins fyndið núna þegar maður er alltaf að sjá þetta…

Re: Hvítur bakgrunnur

í Hugi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já ég er sammála… Ég sé stundum ekki hér á forsíðunni hvort það sé verið að svara greinarhöfundi eða örðu svari, ef skjárinn minn er ekki alveg rétt hallaður þá er enginn munur á þessum ljósbláa og hvíta bakgrunni. Eða ef það væri hægt að hafa eitthvað sérstakt merki eða e-ð á svörum við svörum…

Re: Nefndu þrjár konur í lífi þínu

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ef þú ert að meina þær sem eiga ekki líf, semsagt dánar, þá eru það amma, langamma og systir ömmu og systir langömmu… Þær einu sem ég þekkti vel meðan þær voru á lífi en eru dánar núna…

Re: spurning

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Haha aumingja þau.

Re: spurning

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hahaha í alvöru?? Hversu svekkjandi væri það að vera kannski með sjampó freyðandi í hárinu sínu og svo klárast vatnið allt í einu! :P

Re: Flest stig??

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Egó - 1000 Íslensk tónlist - 42 Gamanþættir - 30 Er ekkert mikið að senda inn eitthvað… Skoða frekar :P

Re: Neville að vinna Voldemort?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Neville hefði svosem getað verið þessi sem myndi getað sigrað Voldemort, hann var fæddur í sama mánuði og Harry og foreldrar þeirra beggja voru búnir að standa frammi fyrir Voldemort þrisvar sinnum (minnir mig). En einhverra hluta vegna þá valdi “Volli” Harry en ekki Neville.. man ekki alveg afhverju. Ég myndi bara lesa kaflann með spádómnum í Fönixreglunni aftur til að skilja þetta alveg.

Re: Þoli ekki....:)

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ekki ég heldur… Ömurlega eðlisfræðin á morgun og samfélagsfr. á föst! :@ og ég á eftir að lesa 4 undirkafla fyrir eðlisfr… Sjitt ég er farin að læra…

Re: bensín !

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ekki þar sem ég bý. Hann fer á 20 mín fresti bara til 9 á morgnanna, svo hálftíma fresti allan daginn (og á ca. 3 klukkutíma fresti fer hann uppí dal sem tekur auka 20 mín…) Og um helgar og á kvöldin fer hann bara á klukkutíma fresti :/ Þannig maður þarf oftast að bíða svo lengi á skiptistöðum sem er ekki gaman. Og heldur ekki gaman að geta ekki tekið strætó heim til sín t.d. eftir bíó nema bíða í klukkutíma í ártúni.

Re: ólesið !

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Á sumum áhugamálum breytist ekki liturinn á lesnum korkum og greinum. Þannig mér finnst miklu betra að hafa svona :)

Re: ?...Spurningar...?

í Harry Potter fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Oj… ógeðslegt… Ekki væri ég til í að búa í þannig kastala…

Re: (ólesið)

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já núna sé ég (ný álit) :P kúl.

Re: Lífið sökkar

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ojj… Greyið bróðir þinn.

Re: AAA

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Já ég skil það… En ég skil ekki svona fólk… mean people :(

Re: AAA

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Oj hvaða níska fólk vill ekki senda hann á spítala?? Díses… Ég fór einu sinni í sumarbúðir (Ölver) þegar ég var lítil og ein stelpan handleggsbrotnaði eða fór úr lið eða e-ð í svona rólu sem rann niður bratta brekku… Hún var send á sjúkrahús og kom bara aftur daginn eftir. Rólan var reyndar tekin úr notkun eftir þetta, en ég þorði hvort sem er aldrei í hana, var frekar mikill hræðslupúki þegar ég var yngri :P

Re: (ólesið)

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Hvar er þetta (ný álit)? Frábært að fá þetta aftur, var virkilega að pirra mig að muna ekki hvaða korka ég hef lesið…

Re: AAA

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Jamm það var ömurlegt að fá ekki að fara… Ég er svo pirruð út í þessa gaura þarna… Og meiri hlutinn af skólanum mínum líka! Skil ekki af hverju við máttum ekki fara :/ Það er alltaf mismunandi hvað fólki finnst um Reyki, sumum finnst geggjað gaman þar en svo eru sumir sem þurftu bara að læra þarna alla dagana og fannst ekkert gaman… Ætli við hefðum ekki þurft að læra þarna, það hefði verið alveg týpískt…

Re: AAA

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Neibb máttum það ekki… útaf einhverjum fávitum úr skólanum mínum fyrir ég veit ekki hvað mörgum árum… Ömurlegt… Við fórum bara á Úlfljótsvatn í staðin í eina nótt sem er örugglega ekki nærrum því eins gaman og á Reykjum! :( Svo fórum við reyndar í Þórsmörk í fyrra.. í eina nótt… Við vorum líka fyrir áramót bara 80 mín á viku í íþróttum og 40 mín í sundi en núna eftir áramót 120 mín í íþróttum…

Re: happy

í Tilveran fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Það er þannig hjá flestum að ef þeim finnst fagið leiðinlegt, þá gengur þeim illa í því, eða nenna ekki að læra það. Reyndar finnst mér ekki gaman í stærðfræði en gengur samt alveg vel í því… En það eru bara örfáir í bekknum mínum sem fíla dönsku og ganga vel í henni…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok