jæja, allt í einu fékk hún móðir mín þá flugu í höfuðið að ef til vill drykki ég of mikið gos…ég spyr nú bara hvernig það er hægt! Ég meina, maður getur varla drukkið hálfan lítra einn á nokkrum klukkustundum án þess að vera sakaður um að drekka of mikið!

Og hún tók upp á því skemmtilega ráði að, HÆTTA AÐ KAUPA GOS…ég held ég sé að þjást af ofskynjunum…mmm…pepsiflöskur fljúgandi í kringum mig… Mig vantar svo gos to recharge my batteries :'[ það hefur enginn það verra en ég..