?...Spurningar...? Já.. ég hef verið að velta fyrir mér í sambandi við afmæli! Þegar Harry Potter á afmæli, senda Ron, Hermione og allir alltaf afmælis gjöf og þannig, og í annari bókinni var hann svo leiður afþví hann fékk ekkert frá þeim, þar sem Dobby tók allan póstinn hans. En afhverju gerist aldrei neitt á afmælis dögum Rons og Hermione? Það er aldrei sagt neitt um það. Ekki einusinni gefið framm hvenar þau eiga afmæli. Og svo er það líka.. Harry Potter fer aldrei á klósettið. Eða í bað/sturtu, og hann burstar aldrei í sér tennurnar. Það kemur oft bara:,, Harry sat niðri í setustofu langt fram eftir nóttu að gera ritgerðina fyrir Snape. Um tvöleytið var hann svo þreyttur að hann lagðist fullklæddur í rúmið og stein sofnaði." Kannski finnst henni of langdregið að vera segja alltaf frá þessu.. en samt bara pæling. :)
Takk fyrir mig.. og vonandi fæ ég svar ;)