Haha kannast við þetta, kenndi mömmu minni á msn fyrir nokkru (hún er 54), þegar hún lærði loksins á það notaði hún það kannski einu sinni og hefur svo aldrei skráð sig inn síðan. Man örugglega ekkert eftir þessu… Líka fyndið í fjölskylduboðum þegar ‘fullorðna fólkið’ er að tala um tölvur og msn og svona, eins og amma mín sem var í tölvunni um daginn og svo poppaði allt í einu upp “kalli kanína has just signed in” og hún skildi náttúrulega ekkert hvað hann var að vilja henni :P