Ég ákvað fyrst að það er ekki mikið aða gerast á þessu áhugamáli, og eins og friends eru geðveikir þættir að koma upp smá samræðum hér…
Ég var að velta fyrir mér hver væri uppáhalds Friends þátturinn ykkar, þá í hvaða seríu og nr hvað hann væri, og helst einhverjar upplýsingar um þáttinn, svona eins og hvað gerist í honum… Ef þið vitið ekki í hvaða seríu þátturinn er né nr hvað, þá er kannski einhver annar sem veit það og getur látið viðkomandi vita…

Annars er minn uppáhaldsþáttur 412 “The Embryos”
þar gerist margt skemmtilegt, aðallega finnst mér skemmtileg spurningarkeppninn sem Chandler og Joey keppa í á móti Monicu og Rachel uppá íbúðina þeirra, og Joey og Chandler vinna.
Einnig er komið fyrir börnunum inní Phoebe og allir voða ánægðir með það..

Vonandi taka bara sem flestir þátt og segja mér og öllum öðrum frá uppáhalds Friends þættinum sínum :D
j0ns0n