Síðasta sumar fór ég í þórsmörk með vinum mínum. Við fórum á jeppa vinar míns með þremur öðrum jeppum. Við vorum á Cherokee á 35“, hilux á 36”, Fox á 33“ og Willis á 35”. Vandræðin byrjuðu við Lónið. Það var mikið vatn, Foxinn fór of djúpt og drap á sér. Honum var kippt upp úr, bíllinn þurkaður og haldið áfram. Ferðin inn í Húsadal gekk svo áfallalaust fyrir sig. Daginn eftir var haldið heim á leið. Það vildi ekki betur til en svo að bakkinn upp úr Krossá var mjög brattur því að það var áll...