Undirtónar lækka verulega í áliti hjá mér eftir þessa umfjöllum. Þetta blað var nú aldrei í uppáhaldi hjá mér en þeir hafa viljað ögra fólki, sem er allt í lagi í hófi, en núna finnst mér það hafa gengið of langt. Ég held að fólk verði að átta sig á muninum milli erótíkur, sem getur verið falleg, og þessa viðbjóðslega kláms, þe. þar sem farið er yfir mörkin. Ég held að með auknu og aðgengilegra framboði aukist einnig sú hætta á að þessi hegðun færist út í þjóðfélagið. Við verðum að fara að...