Hvaða skandall? Besta hljómsveitin var valin áfram af dómnefnd, vinsælasta hljómsveitin var valin áfram af salnum. Ég er samt sammála, Hydrus voru miklu betri en Drain, en ég veit ekki hvað fólk er að væla um þessa Isidor. Ég heyrði í þeim í gær og sá ekki betur en þetta hafi verið 4 eða 5 (man ekki) FÍHstrákar að rembast við að semja tónlist, en eins og svo oft áður þá kemur út einhver rokk/djass “bræðingur” sem þeir fá uppskrift af í tónlistarskólanum sínum. Mjög ófrumlegt að mínu mati....