Nei sko, ef orðin aðlagast tungumálinu, þá er ég að meina að þau falli undir beygingarmyndir þessa máls t.d., þá er þetta alveg íslenska ennþá. Sem dæmi má nefna þá er íslenskan í dag allt öðruvísi en í gamla daga en þetta er samt íslenska ennþá.
Já en það er bara þeirra veikleiki, að svara of fljótt og vita ekki hvað er spurt um og ná því oft ekki að svara því sem spurt er um. Með því gefa þeir náttúrulega MH-ingum hugsanlegar upplýsingar um svörin við spurningum sem MH getur nýtt sér. Þó MK-ingar séu stútfullir af fróðleik þá verða þeir að nýta sér hann rétt.
Þó maður brotni niður þýðir það ekki að maður sé tapsár. Tapsár er meira svona að skjóta á hitt liðið fyrir að vera óheiðarlegir eða eitthvað álíka. Hann var bara svekktur yfir að hafa tapað, sérstaklega þar sem úrslitin voru frekar vafasöm útaf einni hraðaspurningunni. ;)
Mér finnst þeir ekki eiga það skilið út af því þeir vissu svörin en voru bara of fljótir að svara. Það er bara partur af þeirra veikleika að svara of fljótt. Þó þeir geti líka svarað einhverju tengt spurningunni þá eiga þeir náttúrulega að svara því sem spurt er um. MH beið og svaraði því sem spurt var um og vissi það oftar en ekki. Eingöngu MK að kenna að flýta sér svona mikið. Og varðandi hraðaspurninguna þá fengu þeir stig þegar þeir áttu ekki að fá stig, mæli með því að kíkir á...
Það er alveg geðveikt mikið listalíf í MH þó það sjáist kannski ekki beint á áföngum þó að það séu einhverjir eins og myndmenntaráfangarnir og einhverjir fleiri. Þú getur t.d. boðið þig fram í ráð eins og Listaráð og svo eru oft atburðir tengdir listum og þannig. Veit því miður ekki neitt um hina skólana svo það er erfitt að bera saman. MH er í það minnsta frábær.
Haha, að halda að bara stelpur hlusti á Blink 182 er svo langt frá því að vera rétt. Næstum allir sem ég þekki hafa farið í gegnum svona blinktímabil. :P
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..