Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

tmar
tmar Notandi frá fornöld Karlmaður
3.172 stig

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Enova er sérdeilis heppin núna. Vörn Karricks opnast við lærið og hún leggur þangað. Sverðið smýgur í gegnum hold villimannsins. Blóð sprautast úr sárinu en hann virðist varla taka eftir því. Enova: d20+2 17 Dmg: 1d6+2 4 Karrick?

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ég legg til við ánöfnum Kurdori sitthvorum 250 xp/gp fyrir dómgæsluna. Þetta voru ekkert smá margir aðilar og AoO sem þurfti að halda utan um. Allavega…Kurdor fær 250 xp/gp fyrir góðan leik frá mér.

Re: Arena: Fleiri en ein persóna?

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ok…Main char verður að vera kominn á 5. lvl til að alt. char geti komið til leiks. XP fær aðeins sú persóna sem berst eða dæmir hverju sinni. Ekki er leyfilegt að vera með nokkurt crossreference eða cross-over dæmi á milli þeirra. Engin item, xp eða gp mega færast á milli, að viðlögðum refsingum af hálfu dómara. Dómari verður að tiltaka hvor persóna er það sem dæmir leik hverju sinni og sú persóna má ekki vera upptekin í bardaga á meðan. Hvernig líst ykkur á þessi drög?

Re: Arena: XP

í Spunaspil fyrir 19 árum
Tmar: 250 xp/gp fyrir að dæma leik Alexus og Swooper. 1000 xp/gp fyrir að vinna Fizban. 250 xp/gp fyrir að dæma leik HauksD og Drizzt 1000 xp/gp fyrir að tapa gegn Tembomber. 1000 xp/gp fyrir að sigra Dr. Saxa 375 xp/gp fyrir að dæma leik Alexus og Greymantle. 1500 xp/gp fyrir að tapa fyrir Orville…aftur!

Re: Krivnetos óskar eftir andstæðingi

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ég skal dæma. Vantar að komast í mikið XP fyrir litla vinnu :D

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
ARGH! Það gekk ekki upp að kasta longspear! Andskotinn. Hverjum hefði dottið þetta í hug!? :P Allavega…snilldarbardagi. Virkilega skemmtilegur. Takk kærlega fyrir, drengir! Ég þarf að kaupa 2 potion of CMW. Drekk þau bæði strax.

Re: Arena: Fleiri en ein persóna?

í Spunaspil fyrir 19 árum
Sú persóna sem dæmdi leikinn. Maður gæti t.d. ekki notað persónu sem er föst í leik til að dæma.

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti færir sig á B10

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti lítur upp á andstæðing sinn. Hann ákveður að nú er komið nóg. Hann sleppir skyldinum og hamrinum, stígur til hægri og losar um leið spjótið af bakinu. Hann grýtir því af öllu afli upp að Orville. Hugsaðu um þetta, bleyðan þín! Free action: Drop sheild & warhammer. Move action: 5'step, draw a weapon. Standard action: Throw longspear. Att +2.

Re: Arena: Fleiri en ein persóna?

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ég er að tala um að hver leikmaður geti spilað fleiri en eina persónu í Arenainu. Viðkomandi gæti ekki spilað eða keppt á móti sjálfum sér. Ekki væri hægt að flytja item, xp eða gp á milli. Ennþá yrði spilað 1 vs. 1 (nema tembomber sem spilar alltaf margir á móti einum.:P)

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hehe, það er alveg ótrúlegt hverju maður gleymir.

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ekkert mál. Þá ertu með 15 í AC. Hins vegar er ágætt að muna svona strax. Ef Enova væri búinn að pósta actioni, þá hefði ég neyðst til að taka fyrir þetta.

Re: Arena: XP

í Spunaspil fyrir 19 árum
Tmar: 250 xp/gp fyrir að dæma leik Alexus og Swooper. 1000 xp/gp fyrir að vinna Fizban. 250 xp/gp fyrir að dæma leik HauksD og Drizzt 1000 xp/gp fyrir að tapa gegn Tembomber. 1000 xp/gp fyrir að sigra Dr. Saxa 375 xp/gp fyrir að dæma leik Alexus og Greymantle.

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Konan er viðbragðssneggri en Karrick á von á. Hún skýtur sér snöggt til hliðar er hún sér höggið fyrir. Karrick: d20+6 13 Enova?

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Enova sveiflar bjúgsverðinu að villimanninum og er nálægt því að sneyða af honum vinstra eyrað. Á síðustu stundu kemur hann sér undan högginu. Enova: d20+2 11 Karrick?

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti kemur sér í varnarstöðu með hamarinn á lofti, reiðubúinn að slá til drúíðans ef hann hættir sér of nálægt. Þar sem Hrotti veit ekkert hvað er á rullunni er ekki séns hann hverfi á brott og verði þar með af tækifærinu til að slá til Orville. Nota ready action. Ef hann kemst í færi við óvin (í þessu tilfelli Orville, enda sá eini á vellinum) þá slær hann til hans. Ég veit að þetta tryggir mér ósigur, en amk. fair(role)play.

Re: Alexus vs. Greymantle

í Spunaspil fyrir 19 árum
Ég nota bara excel.

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti bítur á jaxlinn og reynir að hrista af sér sársaukann sem fylgir því að vera bitinn og brenndur á sama tíma. Hann finnur hvernig reiðin kraumar í honum og hann ákveður að enda líf rakkans sem fyrst. Hann tekur tvö skref til vinstri og lætur hamarinn falla af miklu afli í átt að höfði Tits. Shitzen! Þetta er orðið tæpt. 5' step á A10. Att +7, dmg 2d6+6. AC:21 HP:26/29

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Jæja, ég er núna búinn að fá allt út úr þessum leik sem hægt er að fá út úr Arena leik. Næg spenna, dramatík og heppni vs. óheppni! Er hægt að fara fram á meira!? Mjög gott. Hvor sem stendur uppi sem sigurvegari, þá finnst mér þessi leikur hafa verið mun skemmtilegri en sá síðasti sem við spiluðum.

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti snýr á staðnum við er hann finnur að hundurinn eltir hann ekki og tekur á rás að honum. Hann heldur hamrinum hátt og lætur höggið ríða af um leið og hann getur. Charge move á A10. Geri charge árás á Tit. +9 to hit, 2d6+6 dmg. AC:19 Bætt við 30. mars 2007 - 01:14 Reitur B11.

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Æ, já, var einhvern veginn með það í kollinum þeir væru 1. lvl galdar! :S

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti sér sæng sína útbreidda og ákveður að láta á hæfileika sína reyna. Hann hleypur undan hundinum. Komdu, karlinn! kallar hann um leið og hann fer af stað. Nota withdraw. Fer á A16

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Nú fer þetta að verða spennandi. PS. Enlarge person og bull's strength virka í min./lvl og min. caster level er 1. Hvað eru komin mörg round? 5-6?

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Þetta átti að vera standard action, ekki move action.

Re: Tembomber vs Tmar

í Spunaspil fyrir 19 árum
Hrotti stígur frá hundinum og finnur litla græna flösku. Hann smellir tappanum af og tæmir innihaldið úr henni upp í sig. 5'step í reit A10. Move action: Drekk potion of CLW.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok