Miðað við að svona magnari sé keyptur nýr í Bretlandi á 1200 Pund þá kostar hann hingað kominn 325.000 kr. Það er ca. 60.000 krónum ódýrara en frá Music123. Ég er auðvitað ekki að mæla þessu bót, þetta er ömurlegt, en staðreynd eigi að síður. Hann kostar sem sagt nýr 380.000 ef þú kaupir hann nýjan frá USA og 325.000 ef þú kaupir hann nýjan frá UK. Með fullri virðingu fyrir Rín þá held ég að þeir hafi yfirleitt ekki verið ódýrari en netverslanir, hvorki með hljóðfæri eða magnara.