Heyrðu geturðu ekki reddað mér þyrlu fyrir hann líka? ;-) Án gríns þá held ég að ég mundi nú ekki fara að kaupa slíka græju, einhversstaðar verður maður að setja mörkin.
Mér er sagt í Tónastöðinni að 73 nótna kosti 160.000 nýtt og 61 nótna kosti 140.000 nýtt. Það má hugsa sér ca 70 - 110 þúsund svona eftir ástandi, nótnafjölda, aldri o.s.frv.
Ég þekki þennan vel, átti hann, mjög fínn gítar með vintage brú og Glendale söðlum sem gera kleyft að intona hann fullkomlega. Hann er annaðhvort módel 2003 eða 2005. Mjög flottur á litinn líka finnst mér. Alveg eins og ný
Hér einn sem sagður er alveg original, hann er 1963 eins og minn og í alveg eins tösku. Þessi kostar 6.500 USD. http://cgi.ebay.com/VINTAGE-1963-FENDER-JAZZMASTER-ELECTRIC-GUITAR_W0QQitemZ110142824774QQihZ001QQcategoryZ33039QQrdZ1QQcmdZViewItem
Ég tek bara fram regnhlífina ;-) góð samlíking. Þetta er sennilega alveg rétt hjá þér. 50% minna miðað við sambærilegan gítar í góðu upphaflegu ástandi. Hér er dæmi um 1965 módel sem virðist vera alveg original: http://cgi.ebay.com/VINTAGE-1965-FENDER-JAZZMASTER-ELECTRIC-GUITAR_W0QQitemZ110140375480QQihZ001QQcategoryZ33039QQrdZ1QQcmdZViewItem Þessi kostar 6000 dollara, miðað við 50% af, mætti kannski segja að minn mundi seljast á 3000 USD í USA. Bætt við 25. júní 2007 - 23:07 Sé reyndar að...
Mæli ekki með Power attenuator. Þú missir “clean soundið” alveg. 5-15W lampamagnari er feikinóg til heimabrúks og 30-50 er fínt í hljómsveit á fullu blasti.
Ég mundi prófa Marshallinn hjá Leak. Við erum að tala um handvíraðan point to point magnara hér!! Samkvæmt myndum mjög vönduð vinna. Hann er 100W en þú getur minnkað hann í 50W þegar þér hentar með því að taka úr annað Powerlampasettið
Jú það er rétt, hann hefur ekki jafn mikið gildi fyrir safnara eins og ef allt væri upprunalegt, lakk o.þ.h. Ég geri ráð fyrir að 1963 módel í upprunalegu ástandi mundi kosta nokkuð marga hundraðþúsundkalla ;-)
Ég er með til sölu nýtt par af Oktava nákvæmlega eins og þetta nema það er svart. Frábærir mækar á góðu verði. http://www.oktavausa.com/microphone/mk012-6s-b-wFMSP.html Læt það á 50.000. Hafðu samband á netfangið vidisson@gmail.com ef þú hefur áhuga. Bætt við 22. mars 2007 - 23:02 Það er þetta svarta sem er á neðri myndinni.
Hann er reyndar með Fishman soundhole pickupi sem er klemmt í gatið. Auðvelt að kippa því úr. Ég lét setja endpin-jack í hann þar sem ég keypti hann. Hann er keyptur hjá My Favorite Guitars í USA. http://www.myfavoriteguitars.com/
Fyrirgefðu President, ég las svarið þitt vitlaust. Ég las D28 þar sem þú skrifaðir HD28. Þá er “Suggested retail price” hjá Martin svona: D28 = 2.849 USD HD28 = 3.299 USD HD28V = 3.899 USD Það er þá 600 USD munur á HD28 og HD28V.
Ég á tvo kassagítara, einn Martin og einn Yamaha. Þrjá rafmagnsgítara, einn Fender Strat, einn Fender Tele og einn Fender Jazzmaster. Mig hefur alltaf langað í góðan Gibson ES-335 og gæti hugsað mér að skipta út Martininum fyrir einn slíkan.
Hér er smá misskilningur á ferðinni President. Það er meira en 1000 dollara munur á listaverði á D28 og HD28V. http://www.mguitar.com/catalog/PDF/MartinPriceList.pdf “Suggested retail price” eins og kaninn kallar það er: D-28 = 2849 USD og HD28V = 3899 USD. Samkvæmt þessu sýnist mér að ef nýr D28 kostar 220.000 kr. í Tónabúðinni þá mundi HD28V kosta yfir 300.000 kr. þar. Bætt við 3. mars 2007 - 23:37 Tónastöðinni meinti ég ;-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..