ekki erum við eitthvað að skíta yfir goth alltaf og einhverja metalhausa allan daginn á nöldur á huga.is. Ekki einu sinni koma með “hugi.is er leim” inn í umræðuna. Þú ert með næstum 1300 stig, það myndi skv. þér gera þig últra-leim. Ekki heldur halda því fram að hnakkar séu umburðarlyndir upp til hópa. Ég veit ekki hve oft ég hef heyrt af því að einhverjir vinir mínir hafa lent í slag við hnakka bara af því að þeir voru í Cannibal Corpse bol eða eitthvað. :)
Og hvað, það er bara allt í lagi að vera vondur við hann? Hefurðu ekkert hugleitt að drengurinn hafi kannski lent í einhverju sem að hefur ruglað hann svona í hausnum? Vissulega gekk hann fram af mörgum og auðvitað fékk hann það tífallt til baka en ertu virkilega svo viss í þeirri trú að það hafi bara verið gott að hann fengi allt þetta mótlæti?
Nú er ég veikur maður, með höfuðverk og ekkert of fullkomna meðvitund svo að ég ætla ekki að halda neinu fram svo að hægt sé að hrekja það, hinsvegar ætla ég að leyfa mér að efast um að Trojuborg hafi aldrei verið fundin. Þú kannast eflaust við Heinrich Schliemann?
Leiðinlega margar stafsetningarvillur hjá þér en flestar voru eflaust innritunarvillur þó finnst mér mikilvægt að nefna það að: “Ég vil” en ekki “ég vill”. “Eitthvað” ekki “einhvað”. “Einhvað” er ekki til.
Þú virðist samt þekkja virkilega lítið til System of a Down… Þeir eru t.d. ekki með tattú, eru (á flestum tímabilum) með mikið skegg, eru armenskir, eru ekki 5 (bara 4), eru ekki emo, ég gæti haldið endalaust áfram ^^
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..