Mig dreymir geðveikt oft svona geðveikt skrýtna drauma….sbr: Ég var að labba með fullt af fólki og þar á meðal voru pabbi minn og önnur systir mín. Og ég var greinilega foringinn, labbaði fremst og allt. Við vorum í svona ástralkri eyðimörk með rauðum klettum :) Svo, í miðri eyðimörkinni, stendur þarna hvít hurð, en það er ekkert fyrir aftan hana, bara ein, stök, hvít hurð. Ég opna, og sé hvítan stiga niður. Og hann fer svona í beygju svo að ég sé ekki fyrir endann á honum. Og ég fer niður...