Ég lendi stundum í því að dreyma mjög weird drauma, það er skondið. Mig langaði að deila einum þeirra með ykkur, sem mig dreymdi ekki í nótt heldur fyrrinótt, semsagt nóttina fyrir 14. mars.

Hér kemur hann:
Ég var með nokkrum sorpurum, og við vorum saman uppi á húsþaki á stóru húsi, sem var verið að byggja. Það skondna var, að það var bensínstöð ofan á þakinu, og þar fór ég inn að kaupa Grand Mariner held ég, sem ég drakk, og það hafði sín áhrif….

Hehe, ég fór að hlæja þegar ég vaknaði og fattaði þennan draum, hann var ég meina, bensínstöð á þaki húss sem er verið að byggja? Og það bensínstöð sem selur áfengi? Pfft…

Núna man ég eftir öðrum draumi, sem er svoldið síðan að mig dreymdi, hann er spúkí… Kannski ég segi frá honum líka:
Ég er svona 6 ára, eða kannski aðeins eldri, allaveganna voða lítill. Ég er að leika við vin minn, og fer heim til hans, sem ég var að gera í fyrsta skipti. Hann býr í svona blokk, og rétt hjá eru 5 risastór einbýlishús, sem ég sé. Í húsinu á öðrum endanum, sem er langflottasta húsið, stendur sjúkrabíll eða eitthvað fyrir utan. Maður er borinn þaðan út.
Jæja, ég og þessi vinur minn förum út að leika, en mamma hans bannar okkur að koma nálægt þessu húsi, þá gerist eitthvað mjög hræðilegt, því hann er voða voða geðveikur og bara veikur. Ég var hræddur…
Spúkí hluturinn við þennan draum er sá að blokkin sem ég var í, sneri alveg eins og blokkin sem ég bý í, í draumnum var ég á sama stað í blokkinni, og húsaröðin var nákvæmlega þar sem skólinn minn er. Húsið sem ég mátti ALLS ekki fara í, það var svo á sama stað og kennslustofurnar sem ég er alltaf í í skólanum…

Mér fanst þetta spúkí, ætlaði alltaf að senda inn á /dulspeki að fá ráðningu á honum, en bara, hef aldrei komið því í verk. Tjah, ég gerði það núna, ef einhver kann að ráða í þetta, endilega segja mér hvað þetta þýðir, ég var voða hærddur við þennan draum í fyrstu…

Dreymir ykkur einhvern tímann mjög steikta weird drauma? Endilega deilið því með mér =}