Hugsa að hjálmurinn hefði hvort eð er eitthvað takmarkað að segja á þessum hraða :) Reyndar spurning hversu auðvelt er að halda augunum opnum þegar komið er upp fyrir 500 km/klst hjálmlaust :þ
Góð grein hjá honum um Bentley - fór að lesa fleiri greinar og grenjaði úr hlátri þegar ég sá þetta: “I have no doubt that BMW will ”rectify“ iDrive- if only because an army of shysters stands ready to enrich the relatives of Americans who iDrive themselves straight into a tree.” .. og svo aftur: “The iDrive is not, as BMW claims, ”A New Way to Drive“. It is, in fact, a new way to die.” :)
Aðallega spurning um pervertíska hugsun þeirra sem lesa hugsa ég :) P.S. - Minnir mig þá frekar á “penis-pump” en eitthvað lyf ef við förum út í þá sálma *glott*
Neibb, hann sagði alveg pottþétt að þetta væri sportbíll - einmitt út af stýrinu þá væri það augljóst ;) Kveikti einmitt á sjónvarpinu þegar hann sat inni í bílnum og var að röfla þetta, fór einmitt að pæla hvort þetta væri ekki bara venjulegur Lexus og sprakk síðan úr hlátri þegar kom í ljós að þetta var ekki bara Lexus - heldur station! :)
Finnst svarið þitt nú ekkert sérstaklega málefnalegt en þú virðist vita eitthvað um málið þannig látum það nú vera. Getur þú útskýrt hvernig var mögulega hægt að ná þessum reikning upp í 400 þús krónur? Miðað við 8 mánaða bið finnst mér 20% afsláttur af vinnu afar ómerkilegur afsláttur! Einnig hefði ég gaman af því að vita hvað vinnan var stór hluti af þessum reikning og hvað varahlutirnir voru? Ef það eru einhverjar eðlilegar ástæður fyrir þessu þá er það gott mál - en ef ekki, þá eru þetta...
Þakka þær pælingar sem hafa komið fram! Sýnist 406 bíllinn vera c.a. það sem ég bjóst við - semsagt ágætis bíll sem vantar upp á aflið. Það er bara það sem ég er að leita að næsta sumar, vantar bíl sem er já á bilinu 1-1,5 milljón. Þarf að eiga hann í eitt ár og eiga síðan tiltölulega auðvelt með að losna við hann til að fara upp um milljón í bíl. Freistingarnar sem settar hafa verið hérna fram eru töluverðar, þ.e.a.s. ef maður teygir sig smá varðandi verðið. Málið er bara það að ég vil...
Þú ert að tala um Land Cruiser 90 - en bíllinn sem hér ræðir um er Land Cruiser 100. Allt annar bíll og sbr. verðið á þeim engan veginn samanburðarhæfir.
Ég er nú reyndar enginn sérstakur aðdáandi Lexus - er harður Mercedes maður ;) En hvaða Lexusar aðrir en LS bíllinn finnst þér vera líkur Benz? Finnst sjálfur hinir bílarnir frá Lexus (GS, ES, IS, SC, LX, RX) ekkert svipa sérstaklega til Benz.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..