Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

thinkagainbedeep
thinkagainbedeep Notandi síðan fyrir 22 árum, 9 mánuðum 48 stig
think again be deep

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þessi maður sem ég sagðist vera sama þó dræpist er rasisti sem viðurkenndi að hata Tælendinga. Mér er alveg sama um rasista já, þeir eru böl heimsins. Hvers vegna er ég sannfærður um að ég viti þessa hluti betur? Til dæmis skólaganga mín sem er ekki það sem gengur og gerist á klakanum. Skoðanir? Ég hata Bush og fyrirlít en kem ekki með rasískar alhæfingar um Kana fyrir því.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það er nú bara smekksatriði hvort Bítlarnir séu eitthvað miklu merkilegri en Hendrix og allir trilljón Kanarnir. “Og rokk er ekki afleiðing jazz, helur er það samsuða blús, country, bluegrass ofl tónlistarstefna. (vissulega á jazzinn sinn hlut en þó er blúsinn langmikilvægastur í þessu samhengi).” Jazz er sjálft samsuða og ekki bara komið frá svörtum eins og sumt fáfrótt fólk heldur. Country og bluegrass og blús eiga allar upphaf sitt í Bandaríkjunum og eru sjálft samsuðu tónlistarstefnur...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ást mín á Bandaríkjunum er svo engan vegin blind. Þekking mín á þeim er meiri en flestra Íslendinga og það þarf ekki mikla þekkingu á listasögu og fleiru til að vera sammála því sem ég segji hér. Þetta eru staðreyndir ekki eitthvað prívat álit mitt. Ég elska margar þjóðir, ekki bara Bandaríkin, og kemur það pólítík ekkert við frekar en önnur ást almennt á að gera.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Það fólk sem kjaftar stöðugt um Kanan, og Kana, og að allir Bandaríkjamenn séu svona og hinsegin þjáist svo augljóslega af minnimáttarkennd að ekkert má augljósara vera. Gagnrýni á ríkisstjórninni er annað mál, ég er líka á móti Bush og þessu öllu, en undir 30% Bandaríkjamanna kusu hann. (Hinir kusu ekki eða kusu Gore) Hvað ertu að væla um Írak? Heldurðu að maður þurfi að vera fylgjandi stríðinu í Írak til að þola ekki þennan rasisma. Vinkona mín fékk sér nýlega kærasta frá Ameríku og hefur...

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég ætti auðvitað ekki að svara þér fyrst þú last ekki lengra, því ég útskýri þetta í greininni, en já, sá sem “tekur” það sem maður á réttilega, endurbætir það, eignar sér það, hann veldur öfund og minnimáttarkennd hjá manni sjálfum sem maður á erfitt með að tjá sig um. Hatrið á venjulegum þjófi er ópersónulegra og grynnra, sérstaklega afþví maður losnar við að líða illa yfir sjálfum sér vegna þjófsins, maður getur hatað hann í fullum rétti, ólíkt þeim sem tekur hlutina frá manni á...

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Rosalega hefurðu mikinn húmor! Ég var bara að koma með þetta um asna til að lýsa yfir áliti mínu á Bush. Skil ekki hvernig þú færð eitthvað um það að ég sé að verja hina misskildu asna út úr því. Flestir Íslendingar hafa ekki einu sinni séð asna svo það segir sig sjálft að þetta er bara innantómt orðatiltæki án neinnar tilfinningar fyrir ösnum, góðrar né slæmrar. Bara svona algjörlega merkingarlaust, pirrandi orð eins og svo margt í íslensku, en það angrar mig svo sem ekkert frekar en hin...

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Carter er frábær. Þar erum við sammála.

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Asnar eru ágætis skepnur. Skapstyggari en hestar og erfiðari í framkomu en engu að síður göfug dýr. Hafa unnið sér margt til frægðar í gegnum söguna til dæmis ferðaðist Jesús um á þeim. Held þú ættir að finna betri líkingu.

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Af sömu ástæðu og Jimmy Carter, Clinton var að halda áfram hans starfi og komst býsna nálægt lausn. Nær en nokkurn tíman mörg ár á undan.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég veit ekki betur en ég hafi svarað öllum þínum spurningum, en sem rasisti ertu líklega of vitlaus til að fatta það. Ég hef hitt fátæka Bandaríkjamenn já. En ég veit líka um Íslendinga sem voru nærri solltir til dauða. Það er meiri synd af ríkum manni að gefa ekki fátækum brauð en millistéttarmanni. Og meiri synd hjá lítilli þjóð þar sem ætti að vera nóg fyrir alla að láta fólk svellta en stórri, afar flókinni þjóð með hundruðum þúsunda ólöglegra innflytjenda eins og Bandaríkin. (Talsverður...

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Clinton komst mjög nálægt verðlaunum, Bush er ábyggilega bara einn af ótal tilnefndum og repúblikana mafían séð um þá tilnefningu. Carter átti verðlaunin skilið líka, enda Demókrati eins og næstum allir góðir stjórnmálamenn Bandaríkjanna hafa verið, enda miklu skárri flokkur.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Og afhverju er þér ekki sama? Þetta er jú mest svart fólk að deyja úr hungri. Eins og margt þetta Asíufólk myndi gera ef við rækjum það úr landi ef þú hugsaðir það dæmi ekki til enda.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Bandaríkin eru stórt land og erfiðara að reka það en Ísland, sama hvaða stjórnmál væru við lýði þar. Það er líka fólk á Íslandi sem svelltur næstum í hel, þó landið sé svona lítið og er þar engu um að kenna nema efnishyggju og grimmd Íslendinga. Ég þekki nokkra Íslendinga sem áttu ekki fyrir mat heldur, og þeir eru þó nokkrir sem sofa úti á götum. Hvernig átt þú að vita í hvaða landi ég skrifa þetta? Ísland er ekkert almennilegt velferðarríki heldur og mjög lélegt miðað við til dæmis...

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Og hvar sástu það? Clinton komst mjög nærri því að vinna, enda merkis maður ólíkt þessum ræfil Bush.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Kom einn til að sanna mál mitt. Vissi það. Flestir fela rasisma sinn betur en þú, það er nú eini munurinn, en það er nóg af fíflum eins og þér líka.

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ef þú skoðar sögu Demókrataflokksins annars vegar og hins vegar Repúblikanaflokksins er augljóst hvor er skárri.

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Já, demókratar tóku þetta ábyggilega saman en þeir hafa mikið til síns máls. Íslendingar virðast hafa meiri áhuga á bólförum hans, sem ættu að vera hans einkamál, en það vill gleymast að Clinton var tilnefndur til nóbelsverðlaunanna. Hann var merkilegur maður og Kanar hafa mikið misst.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þetta var ekki grein um Ameríku eða Evrópu heldur Kanahatur Íslendinga. Íslendingar eru í mínum huga langt að baki sumum Evrópuþjóðum hvað varðar sum þau málefni sem ég hef gagnrýnt þau fyrir. Í ljósi þess að 99% litaðs fólks á Íslandi er skúringarþrælar sem fá ekki að vinna við mannleg samskipti og býðst ekki raunhæfur kostur til að mennta sig, og er oft kallaðar mellur, þá held ég hinar heimsálfurnar skipti Íslendinga engu máli. Ef þú ert að spyrja mig þá hef ég brennandi áhuga á Asíu til dæmis.

Re: BNA vill þjóðernislegri fréttaflutning

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Loksins einhver sem skilur mig!<br><br>think again be deep

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Þau eru flest ljót já. Það er afar létt að eignast einbýlishús á Íslandi ef þú villt búa úti á landi. Mun ódýrara en að búa í lítilli íbúð í 101 Reykjavík eða meðalstórri hvar sem er annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Sama gildir í Bandaríkjunum. Dýrt að búa á skemmtilegustu stöðunum, ef manni finnst menning og fjölbreytni skemmtilegra en gras og móar, sem er smekksatriði. Flestir Bandaríkjamenn hafa aldrei ráð á sambærilegum húsum á bestu stöðunum.

Re: Leyndarmál ANTI - ÞJÓÐARINNAR usa (Sönn saga)

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Íslenskir þrælar? Stór hluti Íslendinga er of miklar rasistar í sér til að ráða fólk af öðrum kynþáttum í vinnu við neitt annað en fiskverkun og skúringar og önnur störf sem fela í sér lítil mannleg samskipti og tryggja varanlega einagrun þessa fólk. Stórum hluta þessa fiskverkafólks og skúringarfólks er svo þrælað út, og veit ég þess dæmi að konur frá Asíu hafi unnið við skúringar 18 tíma á dag til að framfleyta sér á afar lágu kaupi. Fólki með skásett augu er ekki óhætt að fara út að...

Hvenær sagði ég að hann væri sá eini með viti hér. Ég hef ekki verið hér lengi en nóg lesið til að það hafa hneysklað mig og valdið mér vonbrigðum að svona skuli ástatt um þjóð mína. Samt virðist vera hér vitiborið og menntað fólk í og með, til dæmis einhver sem kallar sig ramax og svo þessi greinarhöfundur niflheimur.

Re: Árangur Hr. Bush

í Deiglan fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Hann er bara einn af örfáum mönnum hér sem skrifar grein sem beinist sérstaklega að Bush en ekki Bandarísku þjóðinni og tel ég það merkilegt. Hlæðu eða gráttu eins og þú villt, slík kellingarleg tilfinningavella vekur ekki áhuga minn né áhuga. Ég veit líklega meira um Bandaríkin en þú já. Allt veit enginn, nú nema Guð ef þú trúir á hann. Ég hef lítinn áhuga á fyrirlestrahaldi og því þyrfti að borga mér ansi mikið fyrir að standa í slíku. Ég fæst við aðra hluti sem veita mér meiri gleði en...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok