Já margt er gott og blessað í þessum skrifum þínum. Fyrst má nefna ökukennsluna. Ég lærði fyrir hátt í 10 árum og hafði ekið dráttavél eitt sumar með misjafna hluti í eftirdragi þar sem ég þurfti að hugsa hvað ég var að gera. Ég lærði að hugsa undir stýri og það styðst ég enn við í dag. Ökutímarnir sem ég fór í með kennara voru að mig minnir 10 með prófinu (prófdómaranum). Jú ég var stressaður í prófinu og kennarinn í fínum fíling á föstudegi og þurfti að fara á tvo eða þrjá staði og hvað...